Markaðsráð
Markaðsráð

Fræðsluferð og Vísindaferð

Sæl öllsömul,

Núna á fimmtudaginn 6. október verður haldið í fræðsluferð í Össur hf.

Eins og mörgum er kunnugt er Össur alþjóðlegt fyrirtæki sem hannar og framleiðir stoðtæki, spelkur og stuðningsvörur. Össur er annar stærsti stoðtækjaframleiðandi í heiminum í dag.  Afar skemmtilegt og áhugavert fyrirtæki.

Mæting stundvislega kl. 17:00 upp í Grjótháls 5, aðalinngangur Össurar.

Boðið verður upp á samlokur, kaffi og gos. Engar rútur.

Skráning hefst þriðjudag 4.okt kl. 12:00.

https://myschool.ru.is/myschool/?Page=Exe&ID=2.23&view=0&FagID=0&sID=2&e=992

Næstkomandi föstudag, 7. október verður síðan haldið í vísindaferð í Skýrr.

Skýrr er stærsta upplýsingatæknifyrirtæki landsins með um 1.100 starfsmenn, starfsemi í fjórum löndum og 24 milljarða veltu. Í þessari risavísó viðskiptafræðinema við Háskólann í Reykjavík gefst tækifæri til að rýna bak við tjöldin hjá Skýrr og skoða starfsemi þessa stóra og sniðuga risa og í leiðinni gæða sér á ljúffengum veitingum. Fullkomin leið til að hefja föstudagskvöld.

Svipmynd á YouTube frá síðustu risavísó, tæknigreina við Háskóla Íslands:
http://www.youtube.com/watch?v=urzpe4RJIbI

Mæting í Ármúla 2 stundvíslega kl. 17:00, dagskrá stendur til 19:00, húsið lokar 19:30. Rútur flytja okkur síðan niður í bæ í ennþá meiri gleði!

Skráning hefst á miðvikudaginn kl. 10:30

https://myschool.ru.is/myschool/?Page=Exe&ID=2.23&sID=2&e=993

Hlökkum til að sjá ykkur öll!

*****

English Version.

Dear friends, next Friday 7th of October we will be visiting Skýrr.

The Skýrr family is a group of four IT companies operating in the Nordic region with a staff of over 1,100 people. Turnover in 2010 was around 24 billion ISK (150 m EUR). Skýrr is the 9th biggest IT company in Scandinavia.

A videoclip from the University of Iceland visiting Skýrr:
http://www.youtube.com/watch?v=urzpe4RJIbI

Starts at 17:00 (sharp) and till 19:00. The buses will pick us up around 19:00-19:30 and take us downtown for more fun!

You can sign up for the event on myshool, starting at 10:30 on Wednesday.



 

Leita


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica